15.01.2008 01:47:37 / Ásrún

Missjúmissjú...

Guð hvað ég sakna þessarar síðu og ykkar allra stelpur mínar ;**

Veit einhver hvað gerðist við myndasíðuna, hun virkar ekki lengur ...

-Ásrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 22:51:35 / ErlaMaría

Gömludagasöknuður

Já ég veit þa að ég er ekki dugleg að blogga en hver eila nennir að borða leiðinleg blogg sem eru ekki um neitt nema kannski um “það sem ég gerði um helgina” eða “sko í gær í vinnunni þá”. Ekki ég. Mér finnst eila meira gaman að blogga hér samt heldur en á minni síðu. Einfaldlega út af því að ég læri aldrei á hina og er við það að gefast upp. Ég var annars að skoða myndir frá Ítalíuferðinni í fyrra og nú langar mig svoo! ...sólin, hitinn, sumarið, mannlífið, ísinn, húsin, fólkið, veðrið! um æ love it! Ég skil það ekki í mér að mér finnst ég ekki hafa neitt að gera. Það er einn af þessum hlutum sem ég bara kann ekki að díla við og það sökkar. Einu sinni fannst mér líka svo vangefið gaman að blogga og ég vildi helst blogga á hverjum einasta degi og stundum oftar en nú dettur mér það í hug af og til og þá samt nenni ég því varla. Ég sakna líka gömlu góðu miðtúnsdagana, allra dagana þegar við Ásrún vorum einar heima með Júlíu og kannski vöknuðum svona tólf á hádegi. Restin af fjölskyldunni farin í sund en við vorum latar og nenntum ekki kúk. Bökuðum kannski amerískar pönnukökur...

 

Nei... svona var hinn dæmigerði miðtúnsdagur:

 

13.00 Vöknuðum, myglaðar og ótrúlega sætar!

 

13.45 Drulluðum okkur frammúr, nenntum því ekki samt

 

14.00 Bökuðum amerískar pönnukökur í morgunmat. Annað hvort brenndust þær eða heppnuðust. Ef þær brenndust fengum við okkur ristaðbrauð, ef þær heppnuðust voru þær borðaðar með bestu lyst með fullt af svona jarðaberjasírópi og einhverju sykurmiklu gúmmelaði. Oj en hollur morgunmatur.

 

15.00 Horfðum á eitthvað í sjónvarpinu eins og teiknimyndir í barnatímanum eða eitthvað.

 

17.00 Fórum á msn, hlustuðum á stelputónlist, blogguðum, lásum heitasta slúðrið.

 

19.00 Kominn tími fyrir kvöldmat. Við fórum á Devito´s á meðan fjölskyldan borðaði kjúklingasalat eða Quesedillas. (Nú veit ég hvert þessi flottu læri fóru)

 

21.00 Scrapbookuðumst, föndruðum, hlustuðum á tónlist, fórum kannski í stuttan göngutúr með Júlíu (aldrei langan þó).

 

03.00 Orðnar geispandi þreyttar og úrillar

 

04.00 Komnar í svefngalsa og farnar að tala um gamla góða tíma í Gljúfraselinu eða bara mannakjöt

 

 

Og svo einhverntíman nokkru eftir það sofnuðum við.

 

M hvað ég elska sleepoverpartí, ég vildi helst að þau tækju aldrei enda og maður gæti alltaf verið með sleepover á hverju einasta kvöldi!!

 

-ErlaMaría, með ungasöknuðinn

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 22:46:29 / ErlaMaría

alo Hawahí!!

Oh alveg glatað að sjá að það séu heilar 74 manneskjur sem hafa heimsótt þessa síðu í dag en ekki fengið neitt að sjá annað en gamalt nöldurblogg;) Bendi ykkur á síðurnar  www.blog.central.is/mkpiur

www.erlamaria.bloggar.is

 

Ciao og góðan próflestur;)

 

-ErlaMaría

 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 19:45:48 / ErlaMaría

ósmekkleg frétt frá virkilega ófagmannlegum fréttamanni

Með bandí hýði, bananahýði, baraðann haldí apanna bandi

 

Ég las blogg um daginn sem byrjaði á þvílíku rugli að ég trúði vart mínum eigin augum. Ég hélt að sjálfsögðu áfram að lesa í von um að fá útskýringar á þessari þvælu. Nokkrum línum neðar kom svo í ljós að bloggið var um stórskemmtilega og hápólitíska hluti. Fer vel saman, huh?

 

Fallegur dagur í dag annars, sumar, sól og blíða enda ekki við öðru að búast þar sem það er próflestrardagur. Þetta er alltaf svona. Ég skellti mér á opið hús í Hálsakoti, gamla leikskólanum, með litlum frændsystkinum, mömmum, frænkum og frændum. Þegar heim var svo komið sá ég ekki sóma minn í öðru en að byrja að lesa, en fljótlega hvarf einbeitingin og ég smellti mér á einn bloggsíðurúnt.

 

Þrátt fyrir gott veður, sólina, velgengni í eðlisfræðiprófinu í gær og þá staðreynd að lífið er yndislegt þá er eitt sem hefur verið að pirra mig mikið síðustu svona tvo sólarhringana. Það er þetta mál sem var tekið fyrir í kastljósinu í gær, um Jónínu  og ríkisborgararéttinn hennar Luciu.

 

Eitt sem ég skil ekki alveg við þessa frétt, ef frétt má kalla. Ég næ ekki því sem verið er að reyna að koma til skila. Hingað til hef ég alltaf haldið að fréttaflutningur ætti að vera byggður á traustum upplýsingum, staðreyndum og þessvegna mætti ætla að fréttamenn rúv vönduðu sig aðeins meira við að búa til fréttir heldur en þetta. Hér er beinlínis eitthvað gripið á lofti einn daginn, spunnið í kringum það og dúndrað beint í kastljósið daginn eftir.

 

Auðvitað fer fólk alltaf að efast þegar svona mál koma upp. Menn fara að velta því fyrir sér hver tengslin voru, hvort Jónína hafi verið í aðstöðu til þess að hjálpa Luciu eitthvað og þá hvort hún hafi í raun og veru gert það. En áður en farið er af stað með svona umræður þá þarf að afla upplýsinga og vita hvað í raun og veru fór fram!

 

Einu tengslin sem hafa komið fram hingað til eru þau að Lucia er tengdadóttir Jónínu og Jónína var skráður umboðsmaður hennar þegar hún var að sækja um dvalarleyfi hér. Annað var það ekki. Fyrir Jónínu sem tengdamóður og lögfræðing þykir mér ekkert óeðlilegt við það að hún ráðleggi Luciu með það hvað hún ætti að gera. Er það ekki hennar skylda sem tengdamamma og lögfræðingur að ráðleggja útlendri tengdadóttur sinni í svona málum?

Tengdaforeldrar sem ekki myndu gera það ættu að skammast sín.

 

Og hvað er fólk þá að kvarta? Í dag nær fréttin ekki lengra vegna þess einfaldlega að það eru engar heimildir fyrir öðru en nákvæmlega því sem hér hefur komið fram.

 

Og hvað er spyrillinn þá að ibba sig? Ég hélt að þeir ættu að vera hlutlausir og leitast við að fá sem réttasta mynd af því sem þeir eru að fjalla um. Frekar en að ráðast svona á viðmælendur með látum, spyrja sömu spurninganna og grípa svo frammí áður en nokkurt svar fæst. Helgi, meirasegja krakkarnir á leikskólanum sem ég heimsótti í morgun vita að svona er dónaskapur og ekkert annað!

 

Þegar upp er staðið finnst mér Jónína hafa staðið sig með prýði. Hún tók vel á málunum, var málefnaleg og meðhöndlaði ókurteisina í Helga alveg glimrandi. Annað álit hef ég á honum Helga eftir þáttinn í gær, hann var Rúv til háborinnar skammar svo ekki sé meira sagt.


Gaman að segja frá því annars að amma gamla hringdi einmitt í mig rétt eftir kastljósið og hafði þá verið að blaðra við allar systurnar, frænkurnar og vinkonurnar (flestallt pelsakellingar með rauðglóandi símalínur). Hún lagði áherslu á að þær hefðu allar verið sammála um það að þarna hefði Jónína unnið sér inn atkvæði þeirra allra í kosningunum í maí.

 

Mér finnst við sem þjóð eiga rétt á fréttum sem byggja á staðreyndum og solid upplýsingum og ef vil hefðum áhuga á einhverju öðru værum við áreiðanlega duglegri að kaupa DV.


-ErlaMaría

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 15:37:48 / ErlaMaría

Bústað? Sumar, próflestur...?

Nú líður senn að prófum, átta dagar að fyrsta prófinu mínu allavega og þá finnst mér alveg best að sitja bara heima, horfa á á einhverja brjálæðinga í TopGear í sjónvarpinu og bora í nefið. Sumardagurinn fyrsti kominn og farinn og að því tilefni skellti ég mér í bústað með Huldu, Bjarna, Lindu, sbs, Tomma og svo komu Torfi og Begga. Fórum í pottinn með öllum húðflygsunum (jak), horfðum á alltof mikið af Simpsons og skemmtum okkur konunglega við að skrifa bullsögur í gestabókina og syngja með Blue með Eiffel 65?  90´s þemað alveg að gera sig og Backstreet boys. Hver man ekki eftir ,,Backstreet´s back, alright!!” 

Sumardagurinn fyrsti var annars góður, við stelpurnar fórum á opnun kosningamiðstöðvar Framsóknar í Ýmishúsinu. Hoppukastalann, fengum okkur ís og köku sem Ásrún vildi ekki hætta að borða. Sáum nýja hössl-efnið hennar Ásrúnar. Svo í ljós í vinnuna til Ásrúnar, og grillaði með Huldu, Bjarna, Ppappa og familýjunni um kvöldið.  

Apr 19, 2007

Eins og Lilla sys nefndi í blogginu hér að neðan þá verðum við að gera eitthvað í sumar. Það er möst! Ég held við Taco höfum ekki hist sem Taco í mörg ár, og við Squeezur höfum ekki hist síðan einhverntíman í fyrra þegar Dagur rauða nefsins var og við borðuðum heima hjá  Ásrúnu tortillas. Spælum í því! 

Gleðilegan próflestur allesammen! 

-ErlaMaría 

  Apr 19, 2007


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 04:28:56 / Ásrún

Jahá..

Já Er andvaka eftir Akureyrarferð, Get ekki sofið útaf þynnku!! trúi ekki að svona margir hafa beilað á henni :D

 Nóg með það, Þjóðhátíð stúlkur? Squeezu Reunion, fara allar saman?? Akureyri, vinna sér inn peninga, Eyjar, Galtalækur?:')

 Akureyri: Flug einhvað um 15,000 kall, síðan gistiheimili eða tjaldsvæði. Samt eiginlega bara djamm enginn skemmtun.

 Eyjar: Þyrftum þá að byrja að plana núna! Reyna eins og við getum að fá gistingu, sem er samt alveg fáranlega erfitt og ólíklegt að við náum. Síðan er það svo dýrt að fara þangað, nema Erla getur flogið með okkur, þurfum samt að borga Flugvélabensín, þetta bláa ;)

 Vinna: Er sniðugt því þjóðhátíð er náttla 2 dögum eftir að við 4 squeesurnar komum heim frá Costa Del Sol....

 Galtalækur: Vitiði, ég væri alveg til í að fara þangað og vera bara edrú í heila helgi og djamma með vinkonunum. Á líkegast eftir að vera leið á áfengi náttla eftir Costa ;)

 En nóg með það, elskykkurallar

-Ásrún

Ps. Squeezur, KOMMENTIÐ, hinir mega það náttla líka ...


Já og ég vil enda þetta fallega blogg með mynd sem Gísli (Gríslingur) kærasti Ragnheiðar tók, snillingur :D !!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 00:37:16 / ErlaMaría

18 ára Ásrún í aldanna rás!

....og daginn eftir, þann 17. mars 1989 kom í heiminn þessi yndislega stúlka með eitt brúnt auga og hitt blátt. Við Ásrún kynntumst í fimmta bekk held ég, þegar Ásrún kom stundum til heim til mín í morgunmat áður en við fórum í skólann á morgnana. Mörgum stundum eyddum við í að búa til dansa við Zorro-þemalagið og enn fleiri stundum eyddum við við að hlusta á Britney- “Deep in my heart I know there´s only you”. Einnig vörðum við löngum stundum í það að velta því fyrir okkur hvort við værum, eftir allt, hugsanlega skyldari en foreldrar okkar létu í ljós. Á síðari árum held ég að það hafi komið augljóslega í ljós að við erum þrátt fyrir sitthvora kennitöluna, alveg skuggalega líkar að mörgu leyti.  Síðustu árum lífs okkar höfum við eytt  að mestu leyti saman, á sama heimili, í sama skóla, með sömu tilfinningar, á sama vinnustað, í sömu fjölskyldu, sömu skólabókum og sömu fötunum sem við höfum verið ansi duglegar að deila á milli okkar:)  

Óska þér innilega til hamingju með daginn yndislegan mín, þú ert frábær og megi þessi frábæru ár sem við höfum átt saman margfaldast og verða miklu miklu fleiri:)

Eigðu góðan dag! 

-ErlaMaría


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 09:26:49 / Ásrún

Afmæli :D

Á þessum merkisdegi, 16 mars, 1989 Fæddist frumkvöðull Squeezana, Erla María Jónsdóttir Tölgyes Squeeza. Hún ólst upp í breiðholtinu þar sem hún er núna líklegast að gllugga í bækur í Fb af ákafa með fiðring í maganum ;) Til hamingju elskan og vonandi áttu yndislegann afmælisdag í dag, maður er ekki 18 ára á hverjum degi :*

     

ErlaMaría 

-Ásrún&Ása frá Mk....

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 22:10:55 / ErlaMaría

Önnin hálfnuð og ég sakna MK

Ætli þetta sé ekki í fjórða skiptið sem ég sest niður og ætla að blogga, svo kemur eitthvað annað og truflar athyglina svo ég missi áhugann. Nú er hinsvegar kominn tuttugasti og sjötti febrúar og löngu kominn tími á smá, nokkur-ör-pínulítil orð;)

 

Aðalástæða þess að ég er að blogga er þó sú að ÉG SAKNA MK!!:( Ég fann ekki fyrir því almennilega fyrr en í dag þegar ég villtist, alvöru –villtist- í FB og hafði bara ekki græna hugmynd um hvar ég var. Allt í kringum mig voru einhver raftæki og eitthvað svona rafmagnsiðndrasl sem er líklegast notað í rafvirkjanum og ég var smeyk.:$ Jafnast örugglega á við að týnast í MK á neðstu hæðinni með fullt af bjúgum, kjötkrókum og pyntingatækjum allt í kring:S

 

Það er hinsvegar liðinn helmingur af önninni og styttist óðum í sumarið. Ég er farinn að hlakka svo óóótrúlega til að komast í sólbað og sund án þess að frjósa á tánum og fá gaddfreðið hár.:D Geta sofið út á morgnana, eiga fullt af peningum og tala nú ekki um að fara til útlanda:)  

 

Það helsta sem hefur annars drifið á dagana hjá mér er skólinn að mestu leyti, Brennu-Njálssaga, Stærðfræði hundrað og liggur við mætingarfalli í ensku, alltof mörg skilaverkefni og enn fleiri próf.:cry: Svo skelltum við Ernir okkur í bifhjólaskólann síðustu helgi og stefnan er einmitt tekin grimmt á að klára bóklega, bæði bíl- og mótorhjóla innan næstu tveggja vikna.

Kirkjan einnig í góðum málum, skelltum okkur á Nings með allann krakkaskarann í kvöld og svo beint á löggustöðina að siða þau til. Nee… fengum að sjá fangaklefana, bílabúnaðinn, löggubátinn, útbúnaðinn sem löggan er með, dópleitarhund og eitthvað svona sitt lítið af hverju. Ógissla gaman8) 

 

Svo eru nokkur afmæli á næsta leyti, þ.e. Anna Lilja næstkomandi sunnudag 4.mars, ég tveimur vikum seinna þann 16. og svo Ásrún daginn eftir. –Var einmitt að rifja upp afmælið mitt í sjöundabekk þegar við fórum saman í bústaðinn, haldin var tískusýning, allir dönsuðu macarena og ég veit ekki hvað og hvað fleira. Good times:)

 

Tilnext,

 

ErlaMaría:haha:


» 11 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 02:24:42 / ErlaMaría

Styttist í sumarið!:)

Talandi um fólk sem er engan veginn að standa sig í blogginu þessar vikurnar. Búið að vera svo ótrúlega margt annað að gera... segi nú ekki annað!

 Það sem er annars að frétta af okkur nokkrum skvísunum...

 VIÐ ERUM Á LEIÐINNI TIL COSTA DEL SOL Í SUMAR!!!

 

Er þetta ekki bara einum of girnilegt?!

 -ErlaMaría:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 00:24:00 / ErlaMaría

Fyrsta færsla ársins tvöþúsundogsjö

Heh, ég var búin að skrifa alveg alltof langa og flotta færslu en hún datt út (að sjálfsögðu!) Bottom line-ið var uppdeit frá öllu því sem er búið að vera að gerast hjá okkur öllum frá síðasta bloggi, semsagt -huge.

Reyni þetta aftur við tækifæri, lifið heil börn!

-ErlaMaría


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.12.2006 17:09:22 / ErlaMaría

Þorláksmessa 2006

Nú þegar árið er liðið að mestu leyti kemst ég ekki hjá því að rifja upp og velta fyrir mér öllu því sem hefur gerst og breyst á síðustu tólf mánuðunum. Ég ætlaði að vera voða sniðug og skrifa annál, lista eða skemmtilega frásögn um allt það sem ég er búin að upplifa og gera en þá vandaðist málið þegar ég bara mundi varla eftir neinu. Það er eins og síðustu áramót hafi verið í gær og jólin tvöþúsund og fimm í fyrradag. Ekki bætir úr skák að í dag er Þorláksmessa og aðfangadagur á morgun, hvert eiginlega fer tíminn?! Til að vinna bug á þessu litla vandamáli mínu, hætti ég við að skrifa annál og ákvað að búa bara til mynda-annál (til vinstreee!) ...þar sem ég var einmitt að setja myndir úr Stúdentaveislunni hennar Huldu á miðvikudaginn var.

Gleðileg jól öllsömul og farsælt komandi ár! Takk fyrir all það liðna og megi góðu árin verða margfalt fleiri og margfalt betri:!)

-ErlaMaría:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 21:37:59 / ErlaMaría

Stella í framboði?;)

Jæja 6 dagar til jóla og ég er varla komin í neitt jólaskap enn. Held að ef þetta kikkar ekki inn á næstu dögum verði ég að grípa til örþrifaráða eins og að reyna að komast í jólalagagagnabankann í lappanum hennar Ásrúnar og heilaþvo sjálfa mig, eða fara að baka pipar- og smákökur í tonnatali. Skrautleg sumarbústaðarferð annars að baki hjá mkpiunum og má nálgast allt slúðrið á síðunni www.blog.central.is/mkpiur . Rosalegt alveg! Var svo heppin að Ásrún kom með mat handa mér í vinnuna áðan, alveg eins og sönn húsmóðir og mamma:) - Hakk og Spaghettí ala Ásrún. Svo fengum við okkur Suðrænan-boozt á skyrbarnum á meðan snakkað var um allt það sem gerðist um helgina. -

Langar svo í pipó!!

-EM


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 13:44:24 / ErlaMaría

Desemberblogg

Það eru ennþá fjórtán dagar í jólin og fólk er farið að segja gleðileg jól í búðum:/ -ég er ekki ennþá komin í jólaskap, en bíð þó spennt. Það er aldrei að vita nema þetta kikki inn á síðustu stundu. Ég er í vinnunni, Smárasól, að láta mér leiðast til andskotans því það er ekkert að gera. Allir of uppteknir til að fara í ljós býst ég við. Svo flæddi líka inn á gólfið í sporthúsinu í óveðrinu í nótt svo það var allt á floti í morgun þegar fyrstu starfsmennirnir mættu. (Nú væri gott tækifæri til að þakka fyrir að vera á annarri hæð:) Tækjasalurinn var líkastur sundlaug og gólfið í barnagæslunni allt uppsprungið og ljótt. Alveg með einsdæmum þessi óheppni sem Sporthúsið hefur gengið í gegnum síðustu árin:$ -Jáh, svo er aðeins ein vinnuvika eftir (fyrir okkur utanskólalúðana) og eftir það tekur við jólafrí (sem ég hef þó aldrei hlakkað svona lítið til). Skrítin tilfinning að vera búin að vera í skóla síðustu ellefu árin og alltaf hlakkað til þess að komast í jólafrí, hætta svo í skóla og þá verður nánast enginn munur á föstudegi og mánudegi. Hlakka ótrúlega til að fara í FB eftir áramót, bara af því að það er -skóli- og þótt ótrúlegt megi virðast þá er ég farin að hlakka til að þurfa að vakna á morgnana til að mæta í skólann.

Ef maður hugsar út í það þá er eiginlega fátt glataðra en að sofa til þrjú, mæta í vinnuna sex, fara að sofa fimm og vakna aftur þrjú.

En jæja, nóg komið af bulli. Sjáumst heil og farið alltof varlega í umferðinni... andskotans hálka þessa dagana.

-ErlaMaría


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 20:00:04 / ErlaMaría

Desember 2006

Ótrúlega fer það mikið í taugarnar á mér að vera netlaus - en það einmitt á það til að koma fyrir þegar maður er að vesenast í flutningum. Tölvupósturinn fer í rugl og sama gildir með blogg og annað sem er látið sitja á hakanum. Alveg óþolandi. Svo eru jólin ekki nema tuttugu daga í burtu og ég er enn ekki komin í neitt jólaskap. Man eftir því fyrir löngu þegar maður fékk alltaf smá kitl við að heyra "skildða vera Jólahjól?" og "Ég hlakka svo til" í útvarpinu. -Hef ekki enn fundið fyrir því þessi jólin. Og saaamt er ég búin að kaupa næstum allar jólagjafirnar. Mikið er það gott. Þá getur desemberinn bara farið í að vera á skautum og rölti um bæjinn í snjónum, kannski hugsanlega einhverjar Engjóferðir með Stiga-sleðann eða gömlu rassaþotuna og að drekka alltof heitt kakó í ullarsokkum upp í sófa. Ég fór í Smáralindina um daginn svo ég tala af reynslu og þekkingu þegar ég segi að þetta er hrein og bein klikkun að vera þarna inni. Ekki nóg með að það sé jólastressað fólk sem fyllir út í hvern fermeter verslunarmiðstöðvarinnar heldur þurfa líka að vera jólalög... já, jólalög sem eru spiluð alltof hátt og ég er hrædd við að skrautið í loftinu detti á mig. Mér líst ekkert á þetta. Og þetta er það sem jólin eru farin að snúast svo mikið um. Jólalög, pakka, stress...

Arg, og ég er pirruð og þreytt og nenni ekki að vera að vinna:/

-ErlaMaría, ekki í svo miklu jólaskapi


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19